Hagkaup
|
mbl
|
11. ágúst
Saltfiskur með ólífum, hvítlauk og chili
- Hráefni
- » 800 g úrvals saltfiskur, útvatnaður
- » 4 msk. hveiti
- » 1 dl ólífuolía
- » hvítur pipar úr kvörn
- »
- » 1–2 stk. rauð chilialdin
- » 8–16 stk. hvítlauksgeirar
- » 1/2 dl jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía t.d. frá Monte Vibiano)
- » 1 dl svartar steinlausar ólífur
- » salt og pipar
- »
- » Meðlæti
- » 8–12 stk. nýjar kartöflur
- » 1 msk. smjör
- » 1 msk. fersk steinselja
- » 1/2 stk. sítróna, börkur
- » gróft sjávarsalt
- » hvítur pipar úr kvörn
Aðferð
Skerið saltfiskinn í jafna bita og veltið upp úr hveiti. Látið alla ólífuolíuna í djúpa pönnu og hitið vel. Athugið að olían þarf að vera mjög heit. Steikið saltfiskinn upp úr heitri olíunni fyrst á annari hliðinni og síðan á hinni. Snúið aðeins einu sinni við á meðan á steikingu stendur. Ef saltfiskurinn er ekki fullsteiktur, en orðinn gullinbrúnn og stökkur að utan, setjið hann þá í heitan ofn í nokkrar mín. Piprið eftir smekk.Fræhreinsið chili og skerið í sneiðar. Afhýðið hvítlauksgeira og skerið í sneiðar. Hitið ólífuolíu á pönnu og létt steikið chili og hvítlauk, án þess að brúna. Bætið svörtu ólífunum heilum út í og saltið og piprið eftir smekk. Skiptið því sem er á pönnunni jafnt yfir saltfiskinn.
Meðlæti
Rífið niður börk af sítrónu. Sjóðið kartöflurnar og afhýðið ef með þarf. Bræðið smjör á pönnu og snúið kartöflunum þar í og stráið svo sítrónuberki og hakkaðri steinselju yfir. Saltið og piprið eftir smekk og berið fram með saltfiskinum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/700/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










