Hagkaup
|
mbl
|
11. ágúst
Ofnbakaður saltfiskur með grænmetisblöndu
- Hráefni
- » 750 g saltfiskur
- » 100 g tómatar
- » 100 g blaðlaukur
- » 1 stk. gul paprika
- » 50 g grænar ólífur
- » 6 stk. hvítlauksgeirar
- » 1 dl ólífuolía
- » pipar
Aðferð
Hafið saltfiskinn vel útvatnaðan og roð- og beinlausan. Skerið hann í fjóra jafnstóra bita. Skerið tómata, blaðlauk og papriku í frekar grófa bita. Skerið ólífurnar í tvennt og takið steinana úr. Afhýðið og saxið hvítlaukinn fínt. Hitið ólífuolíu í potti, hellið öllu grænmetinu í pottinn og kraumið í um 5 mín. Setjið grænmetið síðan í eldfast mót, leggið saltfiskinn ofan á og kryddið með svörtum pipar. Bakið réttinn í ofni við 180°C, í um 8 mín., og berið fram með hvítlauksbrauði.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/702/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









