Saltfisk- og kartöflulasagne

Hráefni
» 1 kg saltfiskur, roð- og beinlaus
» 3 stk. hvítlauksgeirar
» 2 stk. rauðlaukar
» 1 stk. rauð paprika
» 2–3 msk. olía
» 3 dósir tómatsósa frá
» Hunt's (400 g hver dós)
» salt og pipar
» 1 kg bökunarkartöflur
» 150 g ostur

Aðferð

Saltfiskurinn þarf að vera meira útvatnaður en fyrir venjulega suðu og þarf því að bæta einum sólahring við útvötnunina. Afhýðið hvítlauksgeira og rauðlauka og skerið niður. Fræhreinsið paprikuna og skerið í um 1 x 1 cm bita. Mýkið hvítlauk, rauðlauk og papriku í olíu í potti. Bætið tómatsósunni út í þegar grænmetið er orðið mjúkt. Kryddið með salti og pipar og sjóðið við vægan hita í um 15 mín. Afhýðið kartöflurnar á meðan sósan sýður og skerið þær í fínar sneiðar um 0,5 cm þykkar. Skerið saltfiskinn í lófastóra bita. Smyrjið eldfast mót og setjið hráefnið í lögum í mótið eins og gert er með hefðbundið lasagne. Setjið fyrst sósu á botninn, síðan kartöflusneið ar og svo saltfisk. Endurtakið þetta þar til allt hráefnið er komið í mótið. Bakið í ofni í 45 mín., setjið þá ostinn yfir og bakið áfram í 15 mín. Gott er að bera ferskt salat fram með þessum rétti.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar