Saltfiskur með laukmarmelaði

Hráefni
» 700 g saltfiskur
» 6 stk. tómatar
» 1 stk. rauðlaukur
» 2 stk. skalottlaukar
» 1 stk. hvítlauksgeiri
» 1 stk. paprika
» 2 greinar ferskt timjan
» 10 blöð fersk basilíka
» 3 bollar hveiti
» 2–3 msk. ólífuolía
» salt og svartur pipar

Aðferð

Útvatnið saltfiskinn. Saltfisk sem á að steikja þarf að útvatna í 2 sólarhringa. Skerið saltfiskinn í hæfilega stóra bita og veltið upp úr hveiti. Steikið saltfiskinn upp úr ólífuolíu, á pönnu, í um það bil 11/2 mín. á hvorri hlið. Skerið tómatana í teninga. Afhýðið og saxið rauðlauk, hvítlauk og skalottlauk, og saxið niður ásamt papriku. Setjið í góðan pott með smá ólífuolíu. Látið suðuna koma upp. Saxið basilíku, rífið niður timjan og bætið saman við. Látið allt sem er í pottinum krauma í 10 mín. og kryddið með pipar og ef til vill smá salti.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar