Hagkaup
|
mbl
|
15. ágúst
Kerfilssósa
- Hráefni
- » 1/2 stk. laukur
- » 2 dl hvítvín
- » 2 dl rjómi
- » 200 g smjör
- » salt
- » 2 msk. íslenskur kerfill
Aðferð
Afhýðið laukinn, saxið fínt og snöggsteikið í smjörlíki í potti. Bætið hvítvíni út í og sjóðið niður um helming. Hellið rjómanum saman við og sjóðið þar til sósan fer að þykkna.Takið pottinn af hellunni, pískið smjörinu, sem á að vera við stofuhita, saman við sósuna og smakkið til með salti. Bætið að lokum smátt söxuðum kerfli út í.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/707/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










