Langa með grænmeti og kerfilssósu

Hráefni
» 800 g lönguflök
» 100 g hveiti
» 2–3 msk. smjörlíki
» 40 g gulrætur
» 40 g blaðlaukur
» 40 g kúrbítur
» 40 g sykurbaunir
» 40 g paprika

Aðferð

Skerið lönguflökin í 4 eða 8 hæfilega stóra bita og veltið upp úr hveiti. Skerið gulrætur, blaðlauk, kúrbít og papriku í strimla. Steikið lönguna í smjörlíki á pönnu í 2–3 mín. Snúið við og bætið niðurskorna grænmetinu og sykurbaununum á pönnuna og steikið áfram í 2–3 mín.

Setjið sósuna á diska, síðan fiskinn og loks grænmetið.

Þessi uppskrift er notuð í Kerfilssósa

Meðlæti

Kerfilssósa

Hráefni
» 1/2 stk. laukur
» 2 dl hvítvín
» 2 dl rjómi
» 200 g smjör
» salt
» 2 msk. íslenskur kerfill

Aðferð

Afhýðið laukinn, saxið fínt og snöggsteikið í smjörlíki í potti. Bætið hvítvíni út í og sjóðið niður um helming. Hellið rjómanum saman við og sjóðið þar til sósan fer að þykkna.

Takið pottinn af hellunni, pískið smjörinu, sem á að vera við stofuhita, saman við sósuna og smakkið til með salti. Bætið að lokum smátt söxuðum kerfli út í.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar