Hagkaup
|
mbl
|
16. ágúst
Skötuselur með villisveppum
- Hráefni
- » 800 g skötuselur
- » 10 stk. sveppir
- » 20 stk. villisveppir
- » 1 dl dökkt púrtvín
- » salt
- » 3 dl fiskisoð
- » 1/2 dl hvítvín
- » 50 g smjör
Aðferð
Leggið villisveppi í bleyti í púrtvín yfir nótt. Saxið villisveppina en sneiðið fersku sveppina. Skerið skötuselinn í 1 1/2 sm þykk stykki og steikið á pönnu í 2 mín. á fyrri hliðinni. Snúið við og kryddið með salti. Bætið smá smjöri á pönnuna og síðan sveppum og villisveppum. Brúnið sveppina og bætið fiskisoði og hvítvíni saman við. Sjóðið við vægan hita í 1 mín. til við-bótar. Jafnið sósuna með smjörinu.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/712/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










