Hagkaup
|
mbl
|
16. ágúst
Villisvepparísottó
- Hráefni
- » 1 bolli arborio hrísgrjón frá Tilda
- » 1 msk. þurrkaðir villisveppir
- » púrtvín
- » 1/4 stk. laukur
- » 2 stk. meðalstórir sveppir
- » 4–5 dl kjötsoð
- » 1 dl rjómi
- » kjötkraftur
Aðferð
Leggið villisveppina í bleyti í púrtvín yfir nótt, án þess að drekkja þeim! Afhýðið lauk. Saxið niður villisveppi, lauk og sveppi. Snöggsteikið lauk og ferska sveppi í smjöri og bætið villisveppunum saman við ásamt hrísgrjónunum. Steikið lítillega og bætið kjötsoðinu út í, þannig að rétt fljóti yfir hrísgrjónin.Sjóðið við vægan hita og bætið soði saman við eftir þörfum. þegar hrísgrjónin eru næstum soðin hellið þá rjómanum út í, hrærið í og sjóðið áfram. Ef rísottóið er of þykkt er soði og rjóma bætt út í. Bragðbætið með kjötkrafti eftir smekk.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/716/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










