Ufsaflök með villisvepparísottói

Hráefni
» 800 g ufsaflök
» 2–3 msk. smjörlíki
» salt

Aðferð

Byrjið á að útbúa meðlætið; rauðlaukskompott, villisvepparísottó og
rauðvínssósu.

Roð- og beinhreinsið ufsaflökin og skerið í fjóra 200 g bita. Steikið ufsabitana í smjörlíki á pönnu í um 2 mín. á hvorri hlið og kryddið með salti. Berið ufsann fram með villisvepparísottói, rauðlaukskompotti og rauðvínssósu.

Þessi uppskrift er notuð í Rauðvínssósa Villisvepparísottó, Rauðlaukskompott,

Meðlæti

Rauðvínssósa

Hráefni
» 1/2 stk. rauðlaukur
» 2 dl fiskisoð
» 1 dl rauðvín
» 1 dl hvítvín
» örlítið balsamedik
» örlítið hunang

Aðferð

Afhýðið og saxið rauðlauk og snöggsteikið á pönnu. Bætið fiskisoði, rauðvíni, hvítvíni, balsamediki og hunangi saman við og sjóðið niður. Ef sósan er of þunn má þykkja hana með sósujafnara eða maizenamjöli. Sósuna má líka bragðbæta með kjötkrafti.

Villisvepparísottó

Hráefni
» 1 bolli arborio hrísgrjón frá Tilda
» 1 msk. þurrkaðir villisveppir
» púrtvín
» 1/4 stk. laukur
» 2 stk. meðalstórir sveppir
» 4–5 dl kjötsoð
» 1 dl rjómi
» kjötkraftur

Aðferð

Leggið villisveppina í bleyti í púrtvín yfir nótt, án þess að drekkja þeim! Afhýðið lauk. Saxið niður villisveppi, lauk og sveppi. Snöggsteikið lauk og ferska sveppi í smjöri og bætið villisveppunum saman við ásamt hrísgrjónunum. Steikið lítillega og bætið kjötsoðinu út í, þannig að rétt fljóti yfir hrísgrjónin.

Sjóðið við vægan hita og bætið soði saman við eftir þörfum. þegar hrísgrjónin eru næstum soðin hellið þá rjómanum út í, hrærið í og sjóðið áfram. Ef rísottóið er of þykkt er soði og rjóma bætt út í. Bragðbætið með kjötkrafti eftir smekk.

Rauðlaukskompott

Hráefni
» 2 stk. rauðlaukar
» 1 dl rauðvín
» 1 msk. sykur
» 1/2 dl balsamedik

Aðferð

Afhýðið rauðlaukana, skerið í ræmur og snöggsteikið á pönnu, án þess að brúna. Bætið rauðvíni, sykri og balsamediki á pönnuna og sjóðið við vægan hita þar til rauðlaukurinn er orðinn meir og vökvinn næstum gufaður upp.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar