Hagkaup
|
mbl
|
16. ágúst
Þorskur með sinnepskornasósu
- Hráefni
- » 800 g þorskflök með roði
- » 2–3 msk. smjörlíki
- » salt
- »
- » Sinnepskornasósa:
- » 1 msk. sætt sinnep
- » 1 msk. dijon sinnep
- » 1 msk. grófkorna sinnep „old fashion“
- » 1 dl fiskisoð
- » 1/2 dl hvítvín
- » 1 dl rjómi
Aðferð
Byrjið á að útbúa sósuna með því að setja allt hráefnið í pott og sjóða saman. Ef sósan verður of þykk má þynna hana með fiskisoði. Skerið þorskflökin í fjóra 200 g bita og steikið í smjörlíki á pönnu með roðhliðina niður, í 3–4 mín. Snúið við, stráið smá salti yfir og steikið í 1 mín. til viðbótar. Steikingartíminn fer eftir þykkt flakanna. Berið fram með sinnepssósunni, salati, grænmeti að eigin vali og kartöflum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/719/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









