Túnfiskur með chutney-sinnepssósu

Hráefni
» 800 g túnfiskur
» 2–3 msk. ólífuolía
» salt

Aðferð

Hafið túnfiskinn í fjórum 200 g sneiðum og brúnið hann í olíu á heitri pönnu í um 11/2 mín. á hvorri hlið. Kryddið með salti og setjið síðan inn í 100°C heitan ofn á meðan þið lagið sósuna.

Þessi uppskrift er notuð í Chutney-sinnepssósa

Meðlæti

Chutney-sinnepssósa

Hráefni
» 50 g laukur
» 50 g blaðlaukur
» 2 dl fiskisoð
» 1/2 dl hvítvín
» 3 msk. mangó chutney, sætt
» 1 msk. dijon sinnep
» 50 g smjör

Aðferð

Afhýðið lauk og saxið og skerið blað-laukinn þunnt í sneiðar. Mýkið lauk og blaðlauk á pönnu án þess að brúna. Bætið fiskisoði, hvítvíni, mangó chutney og sinnepi saman við og sjóðið saman. Jafnið sósuna með smjöri. Í staðin fyrir túnfisk getið þið notað hámeri eða annan fisk.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar