Hagkaup
|
mbl
|
16. ágúst
Chutney-sinnepssósa
- Hráefni
- » 50 g laukur
- » 50 g blaðlaukur
- » 2 dl fiskisoð
- » 1/2 dl hvítvín
- » 3 msk. mangó chutney, sætt
- » 1 msk. dijon sinnep
- » 50 g smjör
Aðferð
Afhýðið lauk og saxið og skerið blað-laukinn þunnt í sneiðar. Mýkið lauk og blaðlauk á pönnu án þess að brúna. Bætið fiskisoði, hvítvíni, mangó chutney og sinnepi saman við og sjóðið saman. Jafnið sósuna með smjöri. Í staðin fyrir túnfisk getið þið notað hámeri eða annan fisk.Þessi uppskrift er notuð í Túnfiskur með chutney-sinnepssósu
Meðlæti
Túnfiskur með chutney-sinnepssósu
- Hráefni
- » 800 g túnfiskur
- » 2–3 msk. ólífuolía
- » salt
Aðferð
Hafið túnfiskinn í fjórum 200 g sneiðum og brúnið hann í olíu á heitri pönnu í um 11/2 mín. á hvorri hlið. Kryddið með salti og setjið síðan inn í 100°C heitan ofn á meðan þið lagið sósuna.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/721/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










