Langa í Gorgonzola ostasósu

Hráefni
» 800 g lönguflök
» 2–3 msk. smjörlíki
» 80 g rauðlaukur
» 80 g sveppir
» salt
» 11/2 dl fiskisoð
» hvítvín
» 2 dl rjómi
» 60 g gorgonzolaostur
» 1 msk. fersk steinselja

Aðferð

Afhýðið rauðlauk og skerið í strimla. Saxið sveppina og steinseljuna. Roð- og beinhreinsið lönguflökin og skerið þau í fjóra 200 g bita. Steikið fiskinn í smjörlíki á pönnu í um 2 mín. Snúið við og steikið í 1 mín. í viðbót ásamt lauk og sveppum og kryddið með salti. Bætið fiskisoði, hvítvíni og rjóma á pönnuna ásamt gorgonzolaosti. Sjóðið þangað til sósan þykknar og kryddið með salti ef með þarf. Bætið saxaðri steinselju saman við og berið fram.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar