Lúðuflök með humarsósu

Hráefni
» 800 g lúðuflök
» 4 stk. stórir humarhalar
» 1 tsk. grillkrydd
» 2 dl rjómi
» 1 dl hvítvín
» 2 stk. hvítlauksgeirar
» 2–3 msk. smjörlíki

Aðferð

Skerið lúðuflökin í fjóra 200 g bita. Afhýðið og saxið hvítlaukinn. Steikið lúðuna í smjörlíki á pönnu í 1 1/2 mín., snúið við og steikið áfram ásamt humarhölum í 1 1/2 mín. til viðbótar. Kryddið með grillkryddi. Bætið rjóma, hvítvíni og hvítlauk á pönnuna og sjóðið þar til sósan þykknar.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar