Keila í rjómasinnepssósu

Hráefni
» 700 g keiluflök
» 30 g laukur
» 1 stk. hvítlauksgeiri
» 30 g gulrót
» 30 g paprika
» 30 g blaðlaukur
» 100 g hveiti
» 1/2 msk. karrí
» 1 dl fiskisoð
» hvítvín (má sleppa)
» salt
» 2–3 msk. sætt sinnep
» 1 msk. dijon sinnep
» 2 dl rjómi

Aðferð

Afhýðið lauk og hvítlauk og skerið laukinn í strimla en saxið hvítlaukinn. Skerið gulrót, papriku og blaðlauk í strimla. Skerið keiluflökin í strimla. Steikið grænmetið snöggt á pönnu. Veltið keilustrimlunum upp úr hveiti og setjið á pönnuna með grænmetinu. Kryddið með karríi og steikið áfram. Bætið fiskisoði og hvítvíni á pönnuna, síðan sætu sinnepi og dijon sinnepi og síðast rjómanum. Sjóðið við vægan hita þar til sósan þykknar og bragð-bætið með salti. Réttinn er gott að bera fram með hrísgrjónum og nýju brauði.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar