Keiluflök með sólþurrkuðum tómötum

Hráefni
» 800 g keiluflök
» 2–3 msk. ólífuolía
» salt og grófmalaður svartur pipar
»
» Sósa
» 1/2 stk. rauðlaukur
» 120 g sólþurrkaðir tómatar
» 120 g sólþurrkaðir tómatar
» 1 dl balsamedik
» 3 dl fiskisoð
» hunang
» 100 g smjör

Aðferð

Byrjið á að útbúa sósuna. Afhýðið rauðlauk og skerið hann og sólþurrkuð u tómatana í strimla. Létt steikið hvort tveggja í potti og bætið síðan balsamediki og fiskisoði út í. Sjóðið við hægan hita í 1 mín. Bragðbætið sósuna með örlitlu hunangi og jafnið síðan með smjörinu.

Skerið keiluna í hæfilega stórar steikur og steikið á báðum hliðum, upp úr olíu, á heitri pönnu. Varist að ofsteikja. Kryddið keiluna með salti og grófum pipar og berið síðan fram með góðu salati og bökuðum kartöflum. Skerið steinbítshnakkana í fjóra álíka stóra bita. Afhýðið hvítlauk, pressið út í ólífuolíuna og leggið steinbítinn þar í. Kryddið með grænmetiskrafti og leggið til hliðar.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar