„Piri piri“ steinbítur

Hráefni
» 1 kg steinbítshnakkar
» 1 stk. stór hvítlauksgeiri
» 1 dl ólífuolía
» 1 msk. grænmetiskraftur
» 1 dl lime-safi, og börkur
» 2 sm engiferrót
» 1 stk. stór agúrka
» 1 haus rómanósalat
» 1 bakki baunaspírur
» 4 msk. „piri piri“ krydd
» 200 g sýrður rjómi
» 2 msk. sæt chili „dip“ sósa
» 2–3 msk. olía
» pipar
» Maldon salt

Aðferð

Rífið börkinn af lime ávextinum með þar til gerðu áhaldi, pressið safann og blandið saman berki og safa. Afhýðið engiferrótina og rífið frekar fínt. Skerið agúrkuna til helminga eftir endilöngu og síðan hvern helming í fernt. Skerið rómanósalathausinn á sama hátt og setjið í skál með agúrku, engifer, baunaspírum og lime-safa. Stráið „piri piri“ kryddi yfir steinbítinn og steikið í olíu á pönnu. Skiptið salatinu niður á fjóra diska. Setjið steinbítinn ofan á salatið og kryddið með pipar og salti. Setjið sýrða rjómann ofan á steinbítinn og sætu chili „dip“ sósuna í dropum yfir.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar