Skötuselskinnar með teriyaki

Hráefni
» 1 kg skötuselskinnar
» 2 stk. hvítlauksgeirar
» 1 dl ólífuolía
» 1 stk. laukur
» 1 stk. rauðlaukur
» 150 g kasjúhnetur
» 2 dl sesamfræ
» salt og pipar
» 100 g snjóbaunir
» 3 stk. niðurlögð chili-paprika („peppedue“)
» 200 ml teriyaki
» 1 msk. hunang
» 1 tsk. grænmetiskraftur
» 10 stönglar graslaukur

Aðferð

Hreinsið skötuselskinnarnar og þerrið. Afhýðið hvítlauk og pressið út í olíuna. Afhýðið og skerið niður lauk og rauðlauk. Ristið kasjúhnetur á þurri pönnu og leggið til hliðar. Hellið smávegis af hvítlauksolíunni yfir skötuselskinnarnar, veltið þeim síðan upp úr sesamfræjum og kryddið með salti og pipar. Steikið kinnarnar stutta stund í olíu á báðum hliðum og takið síðan af pönnunni.

Steikið lauk, rauðlauk og snjóbaunir létt. Saxið niður chili-paprikuna, hellið teriyaki á pönnuna og látið suðuna koma upp. Bætið hunanginu saman við og lækkið hitan. Kryddið með grænmetiskrafti, setjið kinnarnar aftur á pönnuna og látið sjóða við hægan hita í stutta stund. Setjið skötuselskinnarnar á fat og stráið kasjúhnetum og gróft skornum graslauk yfir.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar