Hagkaup
|
mbl
|
16. ágúst
Lúða með saffrani og rúkóla
- Hráefni
- » 1 kg lúðusteikur, 8 stk.
- » 1 stk. stór hvítlauksgeiri
- » 1/2 búnt rúkólasalat
- » 1 dl ólífuolía
- » 1 tsk. dijon sinnep
- » salt og pipar
- » 1/2 stk. laukur
- » 1 tsk. tómatþykkni (tomato paste)
- » 1 tsk. madras karrí
- » 1 askja kirsuberjatómatar
- » 1/2 stk. lime, safinn
- » 1/2 msk. grænmetiskraftur
- » 1/2 msk. saffran
- » 1/2 dl hvítvín (má sleppa)
- » 1 dl rjómi
Aðferð
Afhýðið hvítlauk og maukið í matvinnsluvél með rúkólasalatinu. Bætið olíu og sinnepi út í og maukið saman. Kryddið lúðuna með salti og pipar og hellið rúmlega helmingnum af rúkólapestóblöndunni yfir og kælið fram að steikingu.Afhýðið laukinn, skerið fínt og steikið í restinni af pestóblöndunni, bætið tómatþykkni og karríi út í. Skerið kirsuberjatómatana í tvennt, bætið á pönnuna og látið krauma við vægan hita í um 3 mín. Bætið þá lime-safa og grænmetiskrafti saman við og látið krauma í 2 mín. Stráið helmingnum af saffrani yfir, hrærið aðeins og setjið til hliðar.
Steikið lúðuna í olíu á heitri pönnu. Hellið hvítvíninu yfir þegar lúðan er steikt og svo tómatsósunni. Látið suðuna koma upp og bætið rjómanum saman við. Stráið restinni af saffrani yfir þegar búið er að færa lúðuna upp á fat eða disk. Ef einhver afgangur er af rúkólapestóinu má nota hann til skreytinga, t.d. með því að láta dropa á víð og dreif um fatið eða diskinn.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/731/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










