Hagkaup
|
mbl
|
16. ágúst
„Panneraður“ sverðfiskur
- Hráefni
- » 1 kg sverðfiskur, í 8 hlutum
- » 2–3 msk. olía
- » salt og pipar
- » 1 msk. grænmetiskraftur
- »
- » Kryddlögur
- » 2 stk. hvítlauksgeirar
- » 1 dl ólífuolía
- »
- » Rasp
- » 1 msk. sólþurrkað chili
- » 1 tsk. fenníkufræ
- » 1 msk. grænn pipar
- » 2 msk. kóríanderfræ
- » 2 msk. sinnepsfræ
- » 4 msk. japanskt rasp (pankó)
- »
- » Ansjósumauk
- » 1 stk. rauðlaukur
- » 1 stk. laukur
- » 1 búnt vorlaukur
- » 4 stk. sólþurrkaðir tómatar
- » 4 stk. tómatar
- » 2 msk. kapers
- » 1 dós ansjósur
- » 1/2 búnt oregano
- » 20 stk. svartar ólífur
Aðferð
Búið til hvítlauksolíu með því að pressa hvítlauksgeirana út í ólífuolíuna. Leggið sverðfiskinn á fat og hellið um helmingi olíunnar yfir. Blandið raspið; myljið sólþurrkað chili, fenníkufræ og grænan pipar smátt. Blandið saman við kóríanderfræ, sinnepsfræ og pankó rasp.Látið bíða þar til þið steikið sverðfiskinn.
Útbúið nú ansjósumaukið. Skerið ólífurnar í tvennt. Afhýðið og skerið lauk og rauðlauk í helminga og síðan í sneiðar. Sneiðið vorlauk og steikið síðan laukana mjög stutta stund á pönnu, í helmingnum af hvítlauksolíunni. Best er að hafa laukinn ekki of mjúkan. Saxið sólþurrkuðu tómatana og fersku tómatana og bætið á pönnuna. þerrið kapers og ansjósur og setjið saman við ásamt helmingnum af oregano og ólífum. Takið af hitanum. Veltið nú sverðfisknum upp úr raspinu og steikið í olíu á pönnu. Passið ykkur á að steikja hann ekki of lengi, því hann á að vera frekar lítið steiktur. þegar sverðfiskurinn er næstum tilbúinn, hitið þá ansjósumaukið og setjið á disk. Leggið sverðfiskinn ofan á og stráið helmingnum af oreganoblöð unum yfir. Gott er að djúpsteikja oreganoblöðin þá verða þau skemmtilega stökk. Gerið það áður en þið steikið sverðfiskinn og látið á pappír eftir steikingu, til að þau verði fallega stökk og þurr. Stráið þeim síðan yfir réttinn. Kryddið í lokin með grænmetiskrafti, salti og pipar.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/732/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira










