Hagkaup
|
mbl
|
16. ágúst
Rauðspretta í japönsku raspi
- Hráefni
- » rauðsprettuflök 800 g
- » 2 stk. hvítlauksgeirar
- » 2 dl ólífuolía
- » 1 tsk. cumin
- » 1 msk. madras karrí
- » salt og pipar
- » japanskt brauðrasp (pankó)
- » 2–3 msk. olía
- »
- » Sítrónusmjör:
- » 100 g smjör
- » 1 stk. sítróna, safinn
- » 1 tsk. sítrónubörkur
- » 1 msk. ferskt garðablóðberg (timjan)
Aðferð
Afhýðið hvítlauk og pressið út í ólífuolíuna. Leggið rauðsprettuna í olíuna og kryddið með cumin, karríi, salti og pipar. Sláið flökunum í raspið og steikið síðan í olíu á pönnu. Gott er að bera rauðsprettuna fram með sítrónusmjörinu sem uppskrift er af hér við hliðina.Sítrónusmjör:
Rífið sítrónubörk fínt á þar til gerðu rifjárni og kreistið safann úr sítrónunni. Bræðið smjörið í potti og bætið svo sítrónusafa, sítrónuberki og garðablóðbergi út í.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/733/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










