Lax með „shiitake“-sveppum og ostrusósu

Hráefni
» 1 kg laxaflök
» 2 stk. hvítlauksgeirar
» 1 dl ólífuolía
» 2 stk. appelsínur, safinn
» 1 stk. sítróna, safi og börkur
» 1 búnt vorlaukur
» 10 stk. „shiitake“ sveppir
» 1 stk. rauðlaukur
» 2 stk. lime-blöð (kaffír)
» 2 msk. hunang
» 200 ml ostrusósa
» 20 stk. mintublöð
» 1 haus blaðkál (pak choi)
» pipar og salt

Aðferð

Afhýðið hvítlauk og pressið út í ólífuolíuna. Setjið um 2 tsk. af hvítlauksolíunni í pott. Saxið lime-blöðin smátt. Rífið niður sítrónubörk. Pressið safann úr sítrónunni og appelsínunum og setjið í pottinn með hvítlauksolíunni, ásamt hunangi, söxuðum limeblöð um og ostrusósu. Hitið að suðu og takið pottinn af hellunni.

Skerið laxaflökin í 20 jafna bita og kryddið með salti og pipar. Athugið að ostrusósan er sölt svo fara þarf sérstaklega varlega með saltið. Hellið hvítlauksolíu yfir laxinn. Afhýðið rauðlauk, skerið í tvennt og síðan í sneiðar, langsum. Skerið niður vorlauk og sveppi og saxið mintuna. Steikið laxinn í olíu á pönnu, bætið síðan lauk, blaðkáli og sveppum á pönnuna. Hellið sósunni á pönnuna þegar þetta er tilbúið og látið suðuna koma upp. Stráið vorlauk og mintu yfir. Það er gott að bera réttinn fram með hrísgrjónum eða núðlum.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar