Hagkaup
|
mbl
|
16. ágúst
Sjávarréttir í rauðu karríi
- Hráefni
- » 8 stk. risarækjur
- » 400 g skötuselur
- » 400 g laxaflök
- » 8 stk. risahörpudiskur
- » 1 stk. blaðkál (pak choi)
- » 4 stk. sveppir
- » 1 stk. laukur
- » 1 búnt vorlaukur
- » 1/2 búnt kóríander
- » salt og pipar
- » 100 g hveiti
- » 2–3 msk. olía
- » 1 bakki baunaspírur
- » Karrísósa
- » 1 stk. stór hvítlauksgeiri
- » 2 sm engiferrót
- » 4 msk. rautt tælenskt karrímauk
- » 400 ml kókosmjólk
- » 3 stk. lime-blöð
Aðferð
Byrjið á að búa til karrísósuna. Afhýðið hvítlauk og engifer og skerið í litla bita. Hitið pönnu og setjið karrímauk á pönnuna, bætið hvítlauk og engifer út í ásamt lime-blöðum. Hellið kókosmjólk á pönnuna. Sjóðið við vægan hita í nokkrar mín.Hreinsið blaðkálið og skerið gróft. Skerið sveppina í fernt. Afhýðið lauk, skerið hann niður ásamt vorlauk og saxið kóríander og leggið þetta til hliðar.
Skerið lax og skötusel í 50 g bita og skelflettið rækjur ef þær eru í skelinni. Setjið fiskinn á disk ásamt hörpudiski og kryddið með salti og pipar. Veltið fiskinum upp úr hveiti og steikið örstutt í olíu á wok pönnu. Bætið sveppum og blaðkáli á pönnuna. Hellið karrísósunni yfir og látið suðuna koma upp. Bætið vorlauk og baunaspírum saman við og stráið kóríander yfir. Berið réttinn fram með hrísgrjónum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/735/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










