Kryddjurtarísottó

Hráefni
» 2–3 stk. skalottlaukar
» 2–4 stk. hvítlaukar
» 3 msk. smjör
» 250 g ítölsk rísottó hrísgrjón
» 2–3 msk. saxaðar blandaðar kryddjurtir, t.d. steinselja, basilíka,
» graslaukur og estragon
» 1 dl hvítvín
» 4 dl hænsnakjötsoð
» gróft sjávarsalt
» hvítur pipar
» jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolíu t.d. frá Monte Vibiano)

Aðferð

Saxið skalottlauk smátt ásamt hvítlauk. Bræðið smjörið í potti og sjóðið laukinn þar í við vægan hita. Látið hrísgrjónin og kryddjurtirnar út í pottinn og blandið öllu vel saman. Hafið yfir hitanum þar til grjónin eru orðin „glær“. Hellið þá víninu yfir og smáhluta af hænsnasoðinu. Sjóðið saman við vægan hita og bætið soði smátt og smátt út í eftir því sem grjónin drekka í sig vökvann. Haldið þessu áfram þar til grjónin eru soðin, eftir samtals um 18 mín. Athugið að ef það þarf meiri vökva þá er í lagi að bæta smá vatni saman við. Saltið og piprið eftir smekk.

Hrísgrjón í rísottó eiga að vera nákvæmlega soðin „al dente“ eins og ítalir segja – „stökk undir tönn“. Ítalir nota líka alltaf smjör í rísottó. Skýringin er sú að rísóttó er upprunnið í landbúnaðarhéruðum Pósléttunnar þar sem smjör er mikið notað í matargerð.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar