Hagkaup
|
mbl
|
16. ágúst
Smálúða á kryddjurtarísottói
- Hráefni
- » 800 g smálúðuflök
- » 1 msk. ólífuolía
- » gróft sjávarsalt
- » hvítur pipar úr kvörn
- »
- » 200 g ferskur grænn aspas
- » 100 g gulrætur
Fyrir 4
Aðferð
Roðflettið og snyrtið smálúðuflökin. Skerið í jöfn stykki og steikið við miðlungshita upp úr ólífuolíu á báðum hliðum. Saltið og piprið eftir smekk.Flysjið aspasinn og skerið 2 sm neðan af honum, eða meira ef hann er trénað ur eða þurr í endana. Flysjið eða hreinsið gulræturnar vel. Létt sjóðið grænmetið í örlitlu léttsöltuðu vatni ásamt smjörklípu í 2–4 mín.
Berið réttinn fram á djúpum diski. Setjið steikta lúðuna ofan á rísottóið og aspas og gulrætur þar ofan á. Slettið örlitlu af jómfrúarolíu yfir.
Þessi uppskrift er notuð í Kryddjurtarísottó
Meðlæti
Kryddjurtarísottó
- Hráefni
- » 2–3 stk. skalottlaukar
- » 2–4 stk. hvítlaukar
- » 3 msk. smjör
- » 250 g ítölsk rísottó hrísgrjón
- » 2–3 msk. saxaðar blandaðar kryddjurtir, t.d. steinselja, basilíka,
- » graslaukur og estragon
- » 1 dl hvítvín
- » 4 dl hænsnakjötsoð
- » gróft sjávarsalt
- » hvítur pipar
- » jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolíu t.d. frá Monte Vibiano)
Aðferð
Saxið skalottlauk smátt ásamt hvítlauk. Bræðið smjörið í potti og sjóðið laukinn þar í við vægan hita. Látið hrísgrjónin og kryddjurtirnar út í pottinn og blandið öllu vel saman. Hafið yfir hitanum þar til grjónin eru orðin „glær“. Hellið þá víninu yfir og smáhluta af hænsnasoðinu. Sjóðið saman við vægan hita og bætið soði smátt og smátt út í eftir því sem grjónin drekka í sig vökvann. Haldið þessu áfram þar til grjónin eru soðin, eftir samtals um 18 mín. Athugið að ef það þarf meiri vökva þá er í lagi að bæta smá vatni saman við. Saltið og piprið eftir smekk.Hrísgrjón í rísottó eiga að vera nákvæmlega soðin „al dente“ eins og ítalir segja – „stökk undir tönn“. Ítalir nota líka alltaf smjör í rísottó. Skýringin er sú að rísóttó er upprunnið í landbúnaðarhéruðum Pósléttunnar þar sem smjör er mikið notað í matargerð.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/737/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










