Hagkaup
|
mbl
|
16. ágúst
Steinbítur í möndlukryddhjúp með rúkólasalati
- Hráefni
- » 800 g steinbítsflök
- » 11/2 dl brauðrasp
- » 1 dl möndlur
- » 2 dl blandaðar kryddjurtir; kóríanderlauf, steinselja og graslaukur
- » 2 stk. egg
- » 1 msk. dijon sinnep
- » hnífsoddur cayennepipar
- » salt
Fyrir 4
Aðferð
Roðflettið og snyrtið steinbítsflökin og skerið í jafna bita. Saxið möndlurnar fínt. Hakkið rasp, möndlur og kryddjurtir saman í matvinnsluvél. Sláið eggin út á djúpum diski ásamt sinnepi, cayennepipar og salti. Þerrið fiskinn vel á eldhúspappír og dýfið í eggjahræruna. Látið síðan í kryddaða raspið og hjúpið vel. Þrýstið létt á allan fiskinn svo kryddraspið festist betur.Steikið steinbítinn upp úr ólífuolíu á pönnu, á báðum hliðum. Setjið fiskinn inn í ofn og hafið þar í nokkrar mín. við 170°C. Einnig er mjög gott að djúpsteika fiskinn.
Þessi uppskrift er notuð í Rúkólasalat
Meðlæti
Rúkólasalat
- Hráefni
- » 2 búnt rúkólasalat
- » 4 stk. tómatar
- » 200 g soðnar kartöflur
- » 1/3–1/2 stk. rautt chilialdin
- » 3–5 stk. hvítlauksgeirar
- » 4 msk. möndluflögur
- » 1 msk. kóríanderfræ
- » lítið búnt kóríander
- » 1 dl jómfrúarolía (Extra virgin ólífuolía t.d. frá M. Vibiano)
- » gróft sjávarsalt
- » svartur pipar úr kvörn
Aðferð
Hreinsið rúkólasalatið vel og slítið burt stilkana. Skerið tómatana fyrst í fernt, fjarlægið kjarna og skerið í teninga. Blandið tómötunum saman við rúkólasalatið. Skerið soðnu kartöflurnar í sneiðar og steikið á pönnu. Saltið og piprið eftir smekk. Látið.ær heitar á djúpan disk og rúkólasalatið þar yfir. Saxið chili og hvítlauk smátt og setjið ásamt ólífuolíu í matvinnsluvél. Setið í skál. Ristið möndluspæni og kóríanderfræin á þurri viðloðunarfrírri pönnu og setið heitt út í krydduðu ólífuolíuna. Hakkið kóríanderlaufin smátt og bætið saman við. Saltið og piprið eftir smekk. Gætið þess að halda dressingunni vel volgri og setjið hana jafnt út á rúkólablönduna og kartöflurnar. Leggið stökksteikta steinbítinn þar ofan á.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/739/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










