Hagkaup
|
mbl
|
16. ágúst
Ananas-mangó salsa
- Hráefni
- » 1/2 stk. ferskur ananas
- » 1 stk. þroskaður mangó ávöxtur
- » 2 sm engiferrót
- » 1–2 stk. hvítlauksgeirar
- » 1/3–1/2 stk. rautt chilialdin
- » lítið búnt kóríander
- » 1 stk. lime, safinn
- » 3 msk. kornolía
- » gróft sjávarsalt
- » pipar úr kvörn
Aðferð
Fjarlægið hýði, kjarna og stein úr ananas og mangói. Skerið ávextina í teninga. Saxið saman engiferrót, hvítlauk, chili og kóríanderlauf. Blandið saman við ávaxtateningana og kreistið safa úr einu lime yfir. Setjið kornolíu yfir og saltið og piprið eftir smekk. Látið standa í lokuðu íláti í kæliskáp í minnst 2 klst. áður en rétturinn er borinn fram.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/740/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









