Hagkaup
|
mbl
|
16. ágúst
Eldsteikturhumar í koníaks-rjóma á tagliatelle
- Hráefni
- » 600 g humarhalar
- » 1/4 stk. blaðlaukur
- » 1/2 stk. rauð paprika
- » 1–2 stk. rauðlaukar
- » 2–4 stk. gulrætur
- » 3–5 stk. hvítlauksgeirar
- » 1 búnt basilíka
- » 1 msk. smjör
- » 1 msk. ólífuolía
- » tvöfaldur brandí eða koníak
- » 1 dl kjúklingasoð
- » 2 dl rjómi
- » gróft sjávarsalt
- » hvítur pipar úr kvörn
- » soðið tagliatelle
Aðferð
Skelflettið humarhalana og snyrtið. Skerið blaðlauk langsum og skolið burt allan sand sem leynist á milli laga. Skerið hann síðan í um 5 sm langa strimla. Fræhreinsið papriku og skerið í eins strimla. Afhýðið rauðlauk og skerið langsum í sneiðar. Flysjið gulræturnar og skerið þær einnig í strimla, í sömu lengd. Hakkið hvítlaukinn smátt. Skerið basilíkuna smátt.Hitið smjör og ólífuolíu á víðri djúpri pönnu við meðalhita og steikið humarinn í 1–2 mín. Stráið grænmetisstrimlum, hvítlauk og basilíku yfir.
Hækkið hitann og steikið áfram í 1 mín. Hrærið stöðugt í. Hellið koníakinu yfir og kveikið í. Verið varkár því að það blossar upp bál. Slökkvið eldinn með kjúklingasoði. Kjúklingasoð má búa til úr súputeningi og sjóðandi vatni. Takið humarinn og grænmetið af pönnunni með gataspaða og látið í skál. Hellið rjómanum yfir soðið á pönnunni og sjóðið saman þar til rjóminn hefur þykknað og bragðið.ést. Saltið og piprið eftir smekk. Látið humarinn og grænmetið út í rétt áður en rétturinn er borin fram. Hitið upp og hellið jafnt yfir fjóra diska af soðnu tagliatelle.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/742/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










