Hagkaup
|
mbl
|
16. ágúst
Pönnuréttir skötuselsstrimlar með smáspínati, vorlauk, engifer og chili
- Hráefni
- » 300 g skötuselur
- » 4–6 stk. vorlaukar
- » 1/2–1 stk. rautt chilialdin
- » 1 sm engiferrót
- » 3–5 stk. hvítlauksgeirar
- » 2 msk. austurlensk sesamolía
- » 100 g hreinsað smáspínat (baby spinach)
- » 1/4 tsk. steytt cumin
- » 2 –3 tsk. indónesísk sojasósa (ketjap manis)
- » 1 msk. fersk kóríanderlauf
Fyrir 2
Aðferð
Uppskriftin miðast við tvo.Roð- og skinnhreinsið skötuselinn og skerið í fingurlanga strimla. Hreinsið vorlauka og skerið í 3 sm langa bita, skáhallt. Kljúfið chili, fræhreinsið og skerið þversum í þunna strimla. Afhýðið hvítlauk. Flysjið engiferrótarbitann og saxið smátt ásamt hvítlauksgeirum. Saxið kóríanderlaufin. Takið austurlenska wok pönnu og hitið vel yfir gasloga ef kostur er. Setjið sesamolíu á pönnuna þegar hún er orðin mjög heit. Setjið fisk, vorlauk, chili, engifer og hvítlauk á heita pönnuna og steikið. Hristið fiskinn stöðugt og örsnöggt á pönnunni. Látið spínat og cumin á pönnuna. Hristið áfram í nokkrar sekúndur. Hellið sojasósu yfir og að lokum söxuðu kóríander. Berið fram með soðnum hrísgrjónum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/743/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










