Hagkaup
|
mbl
|
16. ágúst
Minestronesoð
- Hráefni
- » 1–2 stk. skalottlaukar
- » 5–8 stk. hvítlauksgeirar
- » 2–4 stk. gulrætur
- » 3-4 stk. kartöflur
- » 4–6 stk. plómutómatar, vel þroskaðir eða úr dós
- » 4 stk. beikonsneiðar
- » 4 msk. svartar steinlausar ólífur
- » 1 dl hvítvín
- » 2 dl kjúklinga- eða fiskisoð
- » lítið búnt steinselja
- » 1/2–1 tsk. sykur
- » salt og svartur pipar úr kvörn
Aðferð
Afhýðið skalottlauk og hvítlauk og saxið smátt. Flysjið gulrætur og kartöflur og skerið í teninga. Ef notaðir eru ferskir plómutómatar, skerið þá kross í hýðið og setjið í sjóðandi vatn í um hálfa mínútu. Takið þá upp úr og setjið strax í ískalt vatn til þess að hýðið losni af. Skerið heila tómata í litla bita. Skerið beikonið í bita og ólífurnar í tvennt eða þrennt.Setjið hvítvín og soð í pott og allt niðurskorna grænmetið, svörtu ólífurnar og beikonið. Látið suðuna koma hægt upp og fleytið ofan af alla froðu. Sjóðið við vægan hita í 30 mín. Bragðið á og bætið smá sykri út í. Sykurinn vinnur vel með tómötum og eykur tómatbragðið. Saltið og piprið eftir smekk.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/744/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









