Tindabikkja með grænmeti í minestrone soði

Hráefni
» 4 stk. tindabikkjubörð
» 4 msk. hveiti
» 2 msk. smjör
» 1 msk. ólífuolía
» gróft sjávarsalt
» hvítur pipar úr kvörn
» 4 msk. rifinn parmesanostur

Aðferð

Snyrtið tindabikkjubörðin og veltið upp úr hveiti. Hitið smjör og ólífuolíu á pönnu og steikið tindabikkjuna við meðalhita í 3–4 mín. á hvorri hlið. Saltið og piprið eftir smekk. Berið fiskinn fram á djúpum diskum með minestrone soði og parmesanostaflögum ofan á.

Þessi uppskrift er notuð í Minestronesoð

Meðlæti

Minestronesoð

Hráefni
» 1–2 stk. skalottlaukar
» 5–8 stk. hvítlauksgeirar
» 2–4 stk. gulrætur
» 3-4 stk. kartöflur
» 4–6 stk. plómutómatar, vel þroskaðir eða úr dós
» 4 stk. beikonsneiðar
» 4 msk. svartar steinlausar ólífur
» 1 dl hvítvín
» 2 dl kjúklinga- eða fiskisoð
» lítið búnt steinselja
» 1/2–1 tsk. sykur
» salt og svartur pipar úr kvörn

Aðferð

Afhýðið skalottlauk og hvítlauk og saxið smátt. Flysjið gulrætur og kartöflur og skerið í teninga. Ef notaðir eru ferskir plómutómatar, skerið þá kross í hýðið og setjið í sjóðandi vatn í um hálfa mínútu. Takið þá upp úr og setjið strax í ískalt vatn til þess að hýðið losni af. Skerið heila tómata í litla bita. Skerið beikonið í bita og ólífurnar í tvennt eða þrennt.

Setjið hvítvín og soð í pott og allt niðurskorna grænmetið, svörtu ólífurnar og beikonið. Látið suðuna koma hægt upp og fleytið ofan af alla froðu. Sjóðið við vægan hita í 30 mín. Bragðið á og bætið smá sykri út í. Sykurinn vinnur vel með tómötum og eykur tómatbragðið. Saltið og piprið eftir smekk.

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar