Tindabikkja í basilíku- og hvítvínsrjóma

Hráefni
» 4 stk. tindabikkjubörð
» 4 msk. hveiti
» 2 msk. smjör
» 1 msk. ólífuolía
» gróft sjávarsalt
» hvítur pipar úr kvörn
» 1 stk. sítróna

Aðferð

Veltið tilsnyrtum tindabikkjubörð-unum upp úr hveiti. Hitið smjör og ólífuolíu á pönnu og steikið tindabikkjuna við meðalhita í um 3–4 mín. á hvorri hlið. Saltið og piprið eftir smekk. Takið börkinn af sítrónunni og skerið í sneiðar. Leggið sítrónusneið arnar ofan á fiskinn og berið fram með basilíku- og hvítvínsrjómssósunni.

Þessi uppskrift er notuð í Basilíku- hvítvínsrjómasósa

Meðlæti

Basilíku- hvítvínsrjómasósa

Hráefni
» 2 stk. skalottlaukar
» 1 dl hvítvín
» 1 dl kjúklinga- eða fiskisoð
» 2 dl rjómi
» 1 búnt basilíka
» 4 stk. plómutómatar
» 1 stk. sítróna, safinn
» salt og hvítur pipar úr kvörn

Aðferð

Afhýðið og saxið skalottlauk fínt. Sjóðið hann í hvítvíni og soði þar til næstum 1/3 hluti vökvans er eftir. Bætið þá rjóma út í og sjóðið áfram þar til bragðið hefur þést og sósan þykknað.

Skerið kross í tómatana og setjið í sjóðandi vatn í um hálfa mínútu og síðan beint í ískalt vatn, þannig að hýðið losni af. Flysjið tómatana, skerið í fjóra báta og fjarlægið kjarna. Skerið tómatana í bita og setjið út í rjómasósuna. Hakkið basilíkuna og látið út í. Bragðið á og bætið örlitlum sítrónusafa saman við heita sósuna og gætið þess að hún sjóði ekki eftir það. Saltið og piprið eftir smekk. Berið skötuna fram með sósunni, nýjum kartöflum og grænmeti.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar