Hagkaup
|
mbl
|
16. ágúst
Þorskur vafinn í „brick“-deig
- Hráefni
- » 800 g þorskhnakki með roði
- » 4 arkir „brick“-deig
- » 1 bolli heil spínatblöð
- » gróft sjávarsalt
- » hvítur pipar
- » 2 msk. ólífuolía
Aðferð
„Brick“-deig er örþunnar kringlóttar franskar, gegnsæjar, pönnukökur sem fást tilbúnar í pökkum í Hagkaupum. Afhreistrið þorskinn, snyrtið og skerið í 8 jafna bita. Skerið „brick“-deigið í ræmur í sömu breidd og þorskstykkin. Penslið deigið með ólífuolíu. Hreinsið spínatblöðin og fjarlægið stilka og ónýt blöð. Þekið þorskstykkin með lagi af spínatblöð um, saltið og piprið eftir smekk og vefjið smurðum „brick“-deigsræmum utan um.Látið ólífuolíu á pönnu við miðlungshita og steikið þorskinn í „brick“-deiginu á öllum hliðum þar til hann er orðinn gullinbrúnn. Ef stykkin eru þykk látið þau þá inn í 150°C heitan ofn í nokkrar mín.
Þessi uppskrift er notuð í Rauðlaukssulta Sýrð rjómasósa,
Meðlæti
Rauðlaukssulta
- Hráefni
- » 4–6 stk. rauðlaukar
- » 1 msk. smjör
- » 2 msk. rauðvínsedik
- » 2 msk. sykur
- » salt og hvítur pipar úr kvörn
Aðferð
Afhýðið rauðlauka og skerið í báta. Bræðið smjör við miðlungshita og létt steikið rauðlauksbátana. Hellið ediki og sykri yfir rauðlaukinn á pönnunni. Látið á vægan hita og sjóðið saman í þykka sultu. Saltið og piprið eftir smekk.Sýrð rjómasósa
- Hráefni
- » 1 dl hvítvín
- » 1 stk. skalottlaukur
- » grein timjan
- » lárviðarlauf
- » hvít piparkorn
- » 2 dl fiskisoð
- » 2 dl sýrður rjómi 36%
- » 1 stk. sítróna, safinn
Aðferð
Afhýðið skalottlauk og saxið fínt. Sjóðið saman skalottlauk, hvítvín, timjangrein, lárviðarlauf og piparkorn. Setjið út í fiskisoðið. Sjóðið niður um helming og sigtið. Látið aftur í pott og bætið sýrðum rjóma saman við. Hitið að suðumarki og bragðbætið með sítrónusafa. Skreytið með fallegum kryddjurtablöðum, t.d. ítalskri steinselju, basilíku eða dilli.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/750/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









