Sesam steikt rauð-sprettameð rúkólasalati

Hráefni
» 750 g rauðspretta
» 50 g dijon sinnep
» 100 g sesamfræ
» 50 g hveiti
» smjör
» salt og pipar
» 100 g kirsuberjatómatar
» 2–3 msk. ólífuolía
»
» Rúkólasalat
» 1/2 dl ólífuolía
» 1/2 dl hunang
» 1/2 dl balsamedik
» 250 g rúkólasalat
» 50 g fetaostur
» 50 g ólífur
» salt og pipar

Aðferð

Snyrtið rauðsprettuna, skerið í fallega bita og smyrjið með sinnepi. Veltið rauðsprettunni upp úr sesamfræjum og síðan upp úr hveiti. Snöggsteikið í smjöri á vel heitri pönnu, á báðum hliðum og kryddið með salti og pipar. Setjið kirsuberjatómata í lítið eldfast mót, smyrjið þá með ólífuolíu og kryddið með salti og pipar. Bakið tómatana við 180°C í 8 mín. Útbúið salatið á meðan tómatarnir eru í ofninum.

Rúkólasalat
Búið til salatdressingu með því að hræra saman ólífuolíu, hunangi og balsamediki. Blandið fetaosti og ólífum saman við rúkólasalatið og setjið salatdressinguna yfir ásamt smá salti og pipar. Þetta er ferskur og góður réttur sem gott er að bera fram með nýbökuðu brauði.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar