Hagkaup
|
mbl
|
16. ágúst
Stórlúðusteik með pestói
- Hráefni
- » 800 g stórlúðusteikur
- » 50 g hveiti
- » 1 búnt basilíka
- » 50 g sólþurrkaðir tómatar
- » 4 stk. hvítlauksgeirar
- » 5 msk. rifinn parmesanostur
- » 3 msk. furuhnetur
- » 2 dl ólífuolía
- » salt og pipar
Aðferð
Hafið stórlúðuna í fjórum 200 g steikum. Útbúið pestó með því að þurrrista furuhneturnar á pönnu, þar til þær taka gylltan lit. Setjið furuhneturnar í matvinnsluvél ásamt basilíku, sólþurrkuðum tómötum, hvítlauk og rifnum parmesanosti. Hellið ólífuolíu varlega saman við. Smakkið til með smá salti og pipar. Hitið pönnu með ólífuolíu. Veltið lúð-unni upp úr hveiti og snöggsteikið á báðum hliðum. Setjið lúðuna í eldfast mót, makið pestómaukinu á sneiðarnar og bakið í ofni í um 6 mín. Berið stórlúð una fram með fersku salti og bök- uðum kartöflum. Roð- og beinhreinsið karfann, skerið í fallega bita og veltið upp úr hveiti. Hrærið eggin saman, veltið karfanum upp úr þeim og steikið í smjörlíki á pönnu. Kryddið með salti og pipar.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/753/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira










