Hagkaup
|
mbl
|
16. ágúst
Eggjasteiktur karfi á rísottói
- Hráefni
- » 750 g karfaflök
- » 50 g hveiti
- » 2 stk. egg
- » 2–3 msk. smjörlíki
- » salt og pipar
- »
- » Rísottó
- » 1 lítri kjúklingasoð
- » 10 stk. saffranþræðir
- » 1 stk. skalottlaukur
- » 100 g smjör
- » 350 g arborio hrísgrjón, t.d. frá Tilda
- » 1 dl hvítvín
- » 2 msk. parmesanostur
- » salt og pipar
Aðferð
Hitið kjúklingasoðið að suðumarki. Haldið því við suðu og bætið saffrani út í. Afhýðið skalottlauk og saxið fínt, setjið hann með smjöri í pott og mýkið við vægan hita. Blandið hrísgrjónum varlega saman við þegar laukurinn er orðin mjúkur. Hellið hvítvíninu út í pottinn og hrærið stöðugt í. Bætið 2 dl af soði saman við og sjóðið niður þar til nánast allur vökvi er uppurinn. Setjið 1 dl af soði til viðbótar út í pottinn og þannig koll af kolli. Hrærið af og til í pottinum þar til grjónin eru soðin. Bætið að lokum restinni af smjörinu saman við ásamt parmesanosti. Smakkið til með salti og pipar. Skiptið rísottói á fjóra djúpa diska, setjið karfann yfir og berið fram.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/754/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










