Skötuselur með humarfrauði og reyktum tómötum

Hráefni
» 1 kg skötuselur
» 2–3 msk. ólífuolía
» salt og pipar

Aðferð

Roð-, himnu- og beinhreinsið skötuselinn. Steikið hann í olíu á pönnu, í heilum flökum, í 2–3 mín. á hverri hlið, á þremur hliðum. Kryddið með salti og pipar og skerið síðan niður að steikingu lokinni. Hér gildir sama og um stór kjötstykki, það er gott að láta „steikina“ hvíla aðeins eftir steikingu. þannig helst vökvinn betur í fiskinum.

Þessi uppskrift er notuð í „Velouté“-sósa Reyktir tómatar, Humarfrauð,

Meðlæti

„Velouté“-sósa

Hráefni
» 2 stk. skalottlaukar
» 5 g smjör
» 150 ml hvítvín
» 150 ml Noilly Prat (þurr vermút)
» 300 ml fiskisoð
» 300 ml rjómi
» salt og pipar

Aðferð

Afhýðið og skerið skalottlauka smátt. Bræðið smjör í potti og mýkið lauk þar í. Hellið hvítvíni og vermút út í pottinn og sjóðið niður um helming. Bætið fiskisoði og rjóma út í og sjóðið niður um helming öðru sinni. Kryddið með salti og pipar. Athugið að það er hægt að nota krafttening og vatn í staðin fyrir fiskisoðið.

Reyktir tómatar

Hráefni
» 4 stk. tómatar
» sag
» reykkassi

Aðferð

Afhýðið tómatana með því að rista kross í toppinn, setja í sjóðandi vatn í nokkrar sekúndur og síðan beint í ískalt vatn. Skerið tómatana í fjóra báta og fræhreinsið.

Setjið sag í reykkassa og setjið kassann á eldavélarhellu. Setjið tómatana ofan í kassann þegar hann er orðinn heitur og hafið þá þar í um 3 mín. Takið tómatana þá úr kassanum því gæta verður þess að þeir hitni ekki of mikið.

Humarfrauð

Hráefni
» 200 g humarhalar, skelflettir
» 4 dl vatn
» 2 dl rjómi
» 1 msk. skalottlaukur
» 1 msk. rauð paprika
» 1 msk. fersk fenníka
» 1 msk. graslaukur
» salt og pipar

Aðferð

Setjið vatn í pott og létt sjóðið humarhalana stutta stund. Takið humarinn upp úr vatninu og kælið. Sjóðið soðið niður um 2/3 hluta. Setjið rjómann í annan pott og sjóðið niður um helming. Afhýðið skalottlauk og skerið smátt, í litla teninga, ásamt papriku og fenníku. Saxið graslaukinn. Takið helminginn af humarhölunum og maukið í matvinnsluvél með soði og rjóma. Takið maukið úr matvinnsluvélinni og setjið í skál. Blandið smátt skornu grænmeti og graslauk varlega saman við. Skerið það sem eftir er af humrinum gróft, blandið saman við farsið og smakkið til með salti og pipar.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar