Ýsa fyllt með camembert

Hráefni
» 800 g ýsusporðar
» 1 stk. camembertostur
» 100 g hveiti
» 2 stk. egg
» 200 g brauðrasp
» smjörlíki eða ólífuolía
» salt
» 4 dl béarnaisesósa
» rifinn ostur

Aðferð

Roðflettið ýsusporðana og bankið þangað til þeir eru jafnir að þykkt. Skerið camembertostinn í fjórar sneiðar og setjið eina sneið á miðju hvers sporðs. Vefjið fiskinum utan um ostsneiðarnar, brettið upp á hliðunum og veltið upp úr hveiti, svo eggi og síðast raspi.

Steikið ýsuna á pönnu í miklu smjörlíki eða olíu í um 3 mín. á hvorri hlið og kryddið með salti. Athugið að hafa ekki of mikinn hita á pönnunni. Setjið ýsuna í eldfast fat. Setjið béarnaisesósu yfir. Stráið rifnum osti yfir og setjið fiskinn undir grill í bakarofni þar til hann verður gullinbrúnn. †suna má líka djúpsteikja í olíu en þá er stykkjunum fyrst dýft í orly-deig. Gætið þess að hafa djúpsteikingarolíuna ekki of heita.

Berið ýsuna fram með kartöflum eða hrísgrjónum.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar