Hagkaup
|
mbl
|
18. október
Béarnaisesósa
- Hráefni
- » 250 g smjör
- » 3 stk. eggjarauður
- » 2 msk. hvítvínsedik
- » 2 msk. vatn
- » kjötkraftur eftir smekk
- » 1 msk. söxuð steinselja
Aðferð
Bræðið smjörið í potti. Stíf þeytið eggjarauður yfir vatnsbaði þangað til þær eru orðnar að þykku kremi. Blandið bræddu, volgu smjöri varlega saman við. Hrærið hvítvínsediki og vatni saman við. Kryddið með kjötkrafti eftir smekk og blandið saxaðri steinselju saman við.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/765/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










