Ýsa með rækjum „gratín“

Hráefni
» 600 g ýsubitar
» 100 g hveiti
» 2 stk. egg
» salt
» 200 g rækjur
» 4 dl béarnaisesósa
» rifinn ostur

Aðferð

Hafið ýsuna í fjórum 150 g bitum. Setjið eggin í skál og sláið saman. Veltið ýsunni upp úr hveiti og svo eggjum. Steikið á heitri pönnu, með roðhliðina upp, í um 3 mín. Snúið ýsubitunum við, kryddið með salti og steikið í um 1 mín. í viðbót. Takið pönnuna af hitanum og látið standa í 2 mín. Setjið ýsubitana í eldfast fat eða á eldfasta diska. Skiptið rækjunum jafnt yfir fiskbitana og setjið svo béarnaisesósu yfir. Stráið rifnum osti yfir og setjið fiskinn undir grill í bakarofni og bakið þangað til hann verður fallega gullinbrúnn.

Þessi uppskrift er notuð í Béarnaisesósa

Meðlæti

Béarnaisesósa

Hráefni
» 250 g smjör
» 3 stk. eggjarauður
» 2 msk. hvítvínsedik
» 2 msk. vatn
» kjötkraftur eftir smekk
» 1 msk. söxuð steinselja

Aðferð

Bræðið smjörið í potti. Stíf þeytið eggjarauður yfir vatnsbaði þangað til þær eru orðnar að þykku kremi. Blandið bræddu, volgu smjöri varlega saman við. Hrærið hvítvínsediki og vatni saman við. Kryddið með kjötkrafti eftir smekk og blandið saxaðri steinselju saman við.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar