Hagkaup
|
mbl
|
18. október
Plokkfiskur að hætti Úlfars
- Hráefni
- » 900 g þorskflök
- » 100–200 g kartöflur
- » smjörbolla eða sósu.ykkni
- » 1 stk. meðalstór laukur
- » 1/2 lítri mjólk
- » 1 tsk. karrí
- » salt
- » 2 msk. pipar
- » 2 msk. kalt smjör
Aðferð
Sjóðið kartöflurnar, afhýðið og skerið í bita. Roð- og beinhreinsið þorskflökin, skerið þau í bita og sjóðið; látið suðuna koma upp og slökkvið síðan undir hellunni og látið standa á meðan sósan er útbúin, í um 10 mín. Útbúið smjörbolluna. Athugið að í staðin fyrir þorsk má nota ýsu eða lúðu.Afhýðið og saxið lauk og setjið í pott ásamt mjólk, karríi og salti. Hitið að suðu og jafnið síðan með smjörbollu eða sósu.ykkni. Takið hluta af sósunni frá en bætið fiskinum út í sósuna í pottinum ásamt soðnum kartöflum og hrærið gætilega saman við. Ef plokkfiskurinn er of þurr má bæta því sem tekið var frá af sósunni út í. Kryddið með pipar eftir smekk, sumir vilja mikinn pipar en aðrir minna, og setjið svo kalt smjör út í til að fá mýkri áferð. Plokkfiskinn má líka gratínera í ofni með því að setja hann í smurt eldfast mót og setja hollandaise- eða béarnaisesósu og rifinn ost yfir. Uppskrift af béarnaisesósu er hér við hliðina. Bakið réttinn í ofni við 200°C, í um 3 mín. eða þar til hann verður gullinbrúnn.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/767/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









