Gratíneraðar gellur

Hráefni
» 800 g gellur
» 100 g hveiti
» 2 stk. egg
» 200 g brauðrasp
» 150 g rifinn ostur

Aðferð

Byrjið á að útbúa rjómasveppasósuna og béarnaisesósu. Snyrtið gellurnar. Veltið þeim upp úr hveiti, síðan pískuðum eggjum og raspi. Steikið gellurnar á pönnu eða djúpsteikið í olíu í um 3 mín. Setjið gellurnar í eldfast mót, hellið rjómasveppasósunni yfir, síðan litlu magni af béarnaisesósu og að lokum er rifnum osti stráð yfir. Bakið í ofni við 200°C þar til yfirborðið fær fallegan lit.

Þessi uppskrift er notuð í Rjómasveppasósa

Meðlæti

Rjómasveppasósa

Hráefni
» 4 stk. sveppir
» 250 ml mjólk
» 2 tsk. kjötkraftur
» 2 dl sjerrí
» smjörbolla eða sósuþykkni

Aðferð

Sneiðið sveppina og steikið í smjöri í potti. Bætið mjólkinni út í, síðan kjötkrafti og sjerrí.
Þykkið sósuna með smjörbollu eða sósujafnara.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar