Hagkaup
|
mbl
|
18. október
Rauðspretta með rækjum „gratín”
- Hráefni
- » 800g rauðsprettuflök með roði, 4 stk.
- » 2–3 msk. smjörlíki
- » salt
- » 300 g rækjur
- » 4 dl béarnaisesósa
- » 100 g rifinn ostur
Aðferð
Byrjið á að útbúa béarnaisesósuna. Steikið rauðsprettuflökin í smjörlíki á vel heitri pönnu. Látið roðhliðina snúa upp, lækkið hitann og steikið í um 45 sek. Snúið flökunum við, saltið og takið pönnuna af hitanum. Látið flökin jafna sig í um 2 mín. Athugið að steikingartími fer eftir þykkt flakanna. Færið flökin upp á eldfasta diska eða eldfast fat. Skiptið rækjunum á rauðsprettuflökin, setjið béarnaisesósu yfir og stráið svo rifnum osti yfir sósuna. Bakið fiskréttinn undir grilli í bakarofni þangað til hann verður fallega gullinbrúnn. Berið fram með soðnum kartöflum og soðnu grænmeti.Þessi uppskrift er notuð í Béarnaisesósa
Meðlæti
Béarnaisesósa
- Hráefni
- » 250 g smjör
- » 3 stk. eggjarauður
- » 2 msk. hvítvínsedik
- » 2 msk. vatn
- » kjötkraftur eftir smekk
- » 1 msk. söxuð steinselja
Aðferð
Bræðið smjörið í potti. Stíf þeytið eggjarauður yfir vatnsbaði þangað til þær eru orðnar að þykku kremi. Blandið bræddu, volgu smjöri varlega saman við. Hrærið hvítvínsediki og vatni saman við. Kryddið með kjötkrafti eftir smekk og blandið saxaðri steinselju saman við.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/770/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









