Blandaðir sjávarréttir „gratín”

Hráefni
» 640 g ýsa eða þorskur
» 100 g hveiti
» 2 stk. egg
» salt og pipar
» karrí
» 200 g brauðrasp
» 100 g rækjur
» djúpsteikingarolía
» kræklingur eftir smekk
» kræklingur eftir smekk
» sveppasósa
» béarnaisesósa
» 100 g rifinn ostur

Aðferð

Skerið fiskinn í átta bita í fingurstærð, hafið hvern bita um 80 g. Pískið eggin og kryddið þau með salti, pipar og karríi. Veltið fiskinum upp úr hveiti, svo eggi og síðan raspi. Djúpsteikið fiskbitana í olíu eða steikið á pönnu í 2–3 mín., eða þar til þeir eru fallega brúnaðir. Varist að ofsteikja. Færið fiskinn upp á fjóra eldfasta diska og hlutið hvern fiskifingur í fjóra bita, á stærð við kræklinginn. Skiptið rækjum og kræklingi jafnt á diskana og þekið fiskinn með sveppasósu. Setjið béarnaisesósu yfir sveppasósuna og stráið að lokum rifnum osti yfir. Bakið réttinn í ofni þangað til hann verður fallega gullinbrúnn. Berið þennan rétt fram með soðnum kartöflum og grænmeti.

Þessi uppskrift er notuð í Béarnaisesósa Rjómasveppasósa,

Meðlæti

Béarnaisesósa

Hráefni
» 250 g smjör
» 3 stk. eggjarauður
» 2 msk. hvítvínsedik
» 2 msk. vatn
» kjötkraftur eftir smekk
» 1 msk. söxuð steinselja

Aðferð

Bræðið smjörið í potti. Stíf þeytið eggjarauður yfir vatnsbaði þangað til þær eru orðnar að þykku kremi. Blandið bræddu, volgu smjöri varlega saman við. Hrærið hvítvínsediki og vatni saman við. Kryddið með kjötkrafti eftir smekk og blandið saxaðri steinselju saman við.

Rjómasveppasósa

Hráefni
» 4 stk. sveppir
» 250 ml mjólk
» 2 tsk. kjötkraftur
» 2 dl sjerrí
» smjörbolla eða sósuþykkni

Aðferð

Sneiðið sveppina og steikið í smjöri í potti. Bætið mjólkinni út í, síðan kjötkrafti og sjerrí.
Þykkið sósuna með smjörbollu eða sósujafnara.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar