Lax með geitaosti

Hráefni
» 800 g laxaflök
» 1 msk. timjan
» 1 msk. grænmetiskraftur
» 2 stk. hvítlauksgeirar
» 3 msk. ólífuolía
» 200 g ferskt spínat
» nýmalaður pipar
» 250 g geitaostur, t.d. „Buche“
» 4 msk. hunang
» 1 tsk. maldon salt

Aðferð

Roð- og beinhreinsið laxaflökin og skerið í um 5 sm bita. Setjið laxabitana í skál og stráið timjani og grænmetiskrafti yfir. Afhýðið og pressið hvítlauk og hrærið saman við ólífuolíuna. Hellið hvítlauksolíunni yfir laxinn. Blandið spínatinu saman við og kryddið með pipar. Skerið geitaost í hæfilega stóra bita og blandið saman við ásamt hunangi. Setjið allt hráefnið, nema salt, í smurt eldfast mót og bakið við 200°C, ofarlega í ofinnum, í rúmlega 10 mín. Stráið maldon salti yfir um leið og rétturinn er borinn fram.

Þessi uppskrift er notuð í Appelsínu-lavender sósa

Meðlæti

Appelsínu-lavender sósa

Hráefni
» 2 stk. appelsínur, safi og börkur
» 2 msk. hunang
» 2 msk. lavender

Aðferð

Rífið börk af hálfri appelsínu með rifjárni. Kreistið safann úr báðum appelsínunum yfir börkinn. Sjóðið við vægan hita með hunangi og lavender í nokkrar mín. Hrærið vel í á meðan sósan sýður og berið hana svo fram með laxinum.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar