Hagkaup
|
mbl
|
19. október
Þorskur með papriku og chili
- Hráefni
- » 800 g þorskflök
- » 2 stk. grænar paprikur
- » 2 stk. rauðar paprikur
- » 1 stk. stór laukur
- » 3 stk. hvítlauksgeirar
- » 1 stk. chilialdin
- » 3 msk. ólífuolía
- » grænmetiskraftur
- » 12 stk. mintulauf
- » pipar
- » chiliolía
Aðferð
Skerið paprikurnar í tvennt og fræhreinsið. Afhýðið lauk og hvítlauk og setjið ásamt paprikum og chili í olíusmurt eldfast mót. Steikið í ofni í um 10 mín., við 200°C. Kælið og maukið í matvinnsluvél. Skerið þorskflökin í jafna bita. Smyrjið eldfast mót og setjið fiskinn í það. Kryddið með grænmetiskrafti, saxaðri mintu og pipar. Takið frá örlítið af mintunni til að strá yfir í lokin. Blandið paprikumaukinu saman við þorskinum í mótinu og hellið örlítilli chiliolíu yfir. Bakið við 180°C í um 15 mín.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/775/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









