Hagkaup
|
mbl
|
19. október
Bakaður þorskur
- Hráefni
- » 800 g þorskhnakkar
- » 1 stk. stór kúrbítur
- » 2 stk. hvítlauksgeirar
- » 5 msk. ólífuolía
- » 2 sm engiferrót
- » 200 g parmesanostur
- » 1 stk. lime, börkur og safi
- » 3 msk. ferskt oregano
- » 20 stk. kirsiberjatómatar
- » 1 stk. rauðlaukur
- » salt og pipar
- » 1 tsk. cumin
Aðferð
Skerið þorskhnakkana í fjögur 200 g stykki. Skerið kúrbít í fjórar sneiðar á lengdina, hafið þær jafn þykkar. Afhýðið hvítlauk og pressið út í ólífuolíuna. Leggið kúrbítssneiðarnar í olíuna, látið liggja í nokkrar mínútur og grillsteikið síðan. Kryddið grillaða kúrbítinn með salti og pipar og leggið síðan aftur í olíuna.Afhýðið og saxið engiferrót mjög smátt. Rífið helminginn af parmesanostinum mjög smátt og blandið saman við engiferinn. Rífið lime-börkinn og saxið helminginn af oregano og bætið hvoru tveggja saman við parmesanostsblönduna. Veltið þorskhnökkunum upp úr þessari blöndu og leggið síðan í olíusmurt eldfast mót. Bakið þorskinn í ofni, í 5 mín., við 200°C. Skerið tómatana í tvennt, afhýðið og grófsaxið lauk og pressið safann úr lime. Takið þorskinn úr ofninum, setjið kúrbítssneiðarnar í eldfasta mótið með þorskinum og dreifið restinni af parmesanostinum, gróf muldum, yfir kúrbítinn. Setjið síðan tómat, lauk og restina af oregano og kúrbítsendana í litlum bitum við hliðina á þorskinum og kúrbítnum í eldfasta mótinu. Stráið salti, pipar og cumin yfir. Bakið í 10 mín. við 200°C.
Setjið þorskinn á disk. Hellið því sem eftir er í eldfasta mótinu í matvinnsluvél ásamt lime-safa og olíunni sem kúrbíturinn var lagður í og maukið. Smakkið til með salti og pipar eftir smekk.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/776/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










