Hagkaup
|
mbl
|
19. október
Smálúða í bökunarpappír
- Hráefni
- » 800 g smálúðuflök
- » salt og pipar
- » 1 stk. lítill laukur
- » 1 búnt vorlaukur
- » 6 stönglar dill
- » 1 stk. sítróna
- » 1 tsk. rósapipar
- » 1 tsk. fenníkufræ
- » 1 msk. smjör
- » bökunarpappír
Aðferð
Klippið bökunarpappír í fjórar 30 x 30 sm arkir. Hafið smálúðuflökin í fjórum álíka stórum stykkjum. Leggið smálúðuna á bökunarpappírinn og kryddið með salti og pipar. Afhýðið lauk, skerið í tvennt, svo í sneiðar og setjið yfir lúðuna. Saxið vorlauka og dill og setjið yfir. Skerið sítrónuna í fjórar sneiðar, hreinsið steinanna úr eins og hægt er. Setjið sítrónusneiðarnar með lúðunni í pappírnum og stráið rósapipar og fenníkufræjum yfir. Skiptið smjörinu í fernt og setjið ofan á. Lokið pappírnum með því að taka í hornin og snúa vel upp á þau. Bakið neðarlega í ofni, við 180°C, í um 17 mín. Varist að elda við mikinn yfirhita vegna brunahættu.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/777/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










