Hagkaup
|
mbl
|
19. október
Ýsugratín
- Hráefni
- » 1 kg ýsuflök
- » 2 stk. hvítlauksgeirar
- » 2 msk. karrímauk, milt
- » 1 msk. „tikka masala“-mauk
- » 1 haus brokkólí
- » 3 msk. sýrður rjómi
- » 3 msk. rjómi
- » 100 g hveiti
- » 1 tsk. karríduft
- » salt og pipar
- » 2 msk. ólífuolía
- » 200 g mozzarellaostur, rifinn
- » 1 tsk. rifið múskat
Aðferð
Roð- og beinhreinsið ýsuflökin og skerið í bita. Afhýðið og pressið hvítlauk. Hrærið karrímauki og „tikka masala“-mauki saman og bætið hvítlauknum út í. Skerið brokkólí í bita. Hrærið sýrðum rjóma og rjóma saman og bætið saman við karrímaukið. Blandið saman hveiti og karrídufti, salti og pipar. Veltið ýsunni upp úr kryddaða hveitinu. Steikið í olíu á pönnu í um 1 mín. á hvorri hlið. Setjið ýsubita og brokkólí í eldfast mót. Hellið karríblöndunni yfir fiskinn og dreifið rifnum mozzarellaosti yfir. Bakið við 200°C í um 15 mín. Rífið múskatið yfir réttinn þegar hann er tekinn úr ofninum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/778/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira










