Hagkaup
|
mbl
|
19. október
Suðrænn þorskur
- Hráefni
- » 800 g þorskflök
- » 10 stk. sólþurrkaðir tómatar
- » 8 stk. kryddlegin þistilhjörtu
- » 1/2 stk. eggaldin
- » 1 stk. hvítlauksgeiri
- » 2 stk. laukar
- » 1 búnt basilíka
- » salt og pipar
- » 100 g parmesanostur
Aðferð
Skerið þorskflökin í jafna bita, um 5 sm, og setjið í smurt eldfast mót. Skerið sólþurrkaða tómata, þistilhjörtu og eggaldin í litla bita og setjið í fatið með þorskinum. Afhýðið hvítlauk og lauka. Saxið hvítlaukinn en skerið laukana í tvennt, síðan í sneiðar og dreifið yfir þorskinn. Saxið basilíkuna yfir. Kryddið með salti og pipar. Bakið í um 10 mín. við 200°C. Dreifið parmesanosti yfir fiskinn áður en þið berið réttinn fram.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/779/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









